Komin tími á smá færslu, þótt fyrr hefði verið 
Nú er ég komin út til Ungverjalands aftur en aftur á móti er
taskan mín ekki komin. Ekkert smá pirruð, ég lennti á
sunnudagskvöld og þá kom í ljós að taskan mín var týnd, ég fæ hana
sennilega um hádegi á morgun, miðvikudag. Ungverjar eru
sennilega með verstu þjónustulund sem til er og allt í kringum
týnda tösku er bara vesen, eftir að hafa verið hér í fjögur og
hálft ár og umborið slæma þjónustulund á flestum stöðum í
þessu landi þá er bara mælirinn orðinn fullur eftir
allan þennan tíma, ég hef enga þolinmæði fyrir þeim lengur og
þar af leiðandi pirra ég mig á öllu sem þeir gera eða gera ekki. En
nóg um það 
Ég átti alveg ágætan tíma heima, reyndar kom ég miklu minna
í verk en ég ætlaði en það er alltaf þannig. Ég fór á tónleika með
Sálinni og Gospel, þvílík snilld. Síðan fór ég á Skagaströnd í
heimsókn eina helgi og cjillaði með Helenu, Skúla og börnunum
"mínum", það er alltaf jafn gaman þar. Síðan komu Helena og co líka
í bæinn til okkar, voru með okkur yfir áramótin og komu síðan aftur
næst síðustu helgina áður en ég fór út, bara endalaust stuð út í
gegn. Frikki kom líka í bæinn yfir jól og áramót og hann kom
líka um síðustu helgi, hann ætlar að koma að heimsækja mig
einhverntíman á önninni og ég er nú þegar orðin spennt.
Mesti tíminn fór þó í starfsnám á fæðingar og
kvennadeildinni á landspítalanum, var þar í þrjár heilar vikur og á
þeim tíma lærði ég alveg helling. Það eru alveg stórkostlegir
læknar á þessarri deild, alltaf tilbúnir að svara spurningum og
leyfa manni líka að taka þátt í ýmsum hlutum, t.d. var ég fyrsti
aðstoðarmaður sérfræðings í að minnsta kosti 10 aðgerðum, rosalega
var það gaman. Sá líka eðlilegar fæðingar og 3 keisaraskurði, maður
verður ekkert smá emotional þegar maður fylgist með svona. Eftir
hvern einasta dag þarna var ég alveg uppgefin af þreytu, ég hafði
verið að meðtaka upplýsingar allan daginn.
En það sem ég sé mest eftir að hafa ekki gert á þessum tíma er
að hafa ekki meira samband við vini mína, SORRY
. Ég hef
aldrei áður verið svona léleg í að hafa samband við fólk, ég
var bara extremly löt.
Luv u all