blog.central.is/thorunnanna
vinir á Íslandi
11.10.2007 17:45:17 / thorunnanna

LOKSINS

Á morgun eru 8 mánudir sidan ég skrifadi sidast svo mér fannst kominn timi af smá fréttum af Ungverjanum.

 Ég er nykomin til Ungverjalands aftur eftir ad hafa verid heima i 4 mánudi. Ég var ad vinna á Höfn i Hornafirdi sem héradslaeknir i 3 mánudi, thad var brjálad ad gera allan timan en lika mjög skemmtilegt. Ég hef aldrei á minni löngu aevi verid svona stressud eins og var ádur en ég hóf starfid á Höfn, ég hélt ad ég kynni ekki neitt. En thegar á hólminn var kominn thá kom i ljós ad ég kynni eitthvad meira en ég hélt og sidan er svo frábaert fólk á heilsugaeslunni á Höfn sem er alltaf tilbúid ad hjálpa manni ef thurfti. Sidan i september thá var ég 4 vikur i starfsnámi á geddeildinni á LSH. Ég var aldrei neitt hrifin af gedlaekningum ádur en ég fór i starfsnámid en núna kemur thetta vel til greina sem sérfraedinám i framtidinni en ég er samt ekki búin ad ákveda neitt ennthá.

I gaer tók ég fyrsta 6. árs lokaprófid mitt, thad var einmitt i gedlaekningum.  Thetta próf gekk bara vonum framar, 5 af 5 mögulegum. Ég verd ad fá ad monnta mig af thvi ad eg gat svarad hverri einustu spurningu sem prófessorinn spurdi mig, ekki leidinlegt próf thar :haha:

Núna á morgun er ég ad fara til Búdapest ad taka á móti 42 Hornfirdingum. Thad var ákvedid í fyrra sumar, thegar ég var ad vinna sem hjúkka á Höfn, ad thad yrdi farid í starfsmannaferdalag til Budapest í haust.  Thau koma á morgun, starfsmenn og makar, og fara aftur til Íslands á Thridjudaginn. Ég verd víst turist guide, ég keypti mér bók um Búda í dag og hef verid ad stúdera hvad ég á ad syna theim. Thetta verdur svaka stud.

Kved í bili. Ég lofa ad thad verdur ekki svona langt i naestu faerslu eins og sídast, kannski verda samt 7 mánudir i hana ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 18:52:26 / thorunnanna

Ungverjinn heldur áfram að tjá sig

Nú er önnur vika skólans hafin, og byrjunin á önninni lofar góðu. Fullt af mjög skemmtilegum fögum sem ég er í núna t.d. Svæfingarlækningar, smitsjúkdómalækningar og margt fleira. Nú eru allir skólafélagar mínir að klára að týnast til Ungverjalands reiðubúnir að hefja nýja önn, það er mjög gaman að hitta alla aftur og heyra hvað fólk hefur verið að gera síðustu 7 vikur. Næstum allir sem voru komnir fyrir helgina fóru á djammið um helgina, snilldar helgi í alla staði.

Það er mjög skrítið að hugsa til þess að þetta sé síðasta önnin sem maður er með sínum skólafélögum sem maður hóf nám með fyrir tæpum 5 árum, því á 6. ári mun ég og aðrir nemendur á árinu mínu vera í sínu landi í starfsnámi og fljúga síðan hingað út til að taka prófin. Síðan eru 3 útskriftir á ári (jún, sept og des) og við munum útskrifast á mismunandi tímum. Nú er hafin vinna á árbókinni fyrir árið okkar, ég er mjög spennt að sjá útkomuna. Ég ætla að skrifa grein um Ingvar  og hann mun skrifa um mig, fólk gat valið hvort það skrifaði grein um sjálfan sig eða léti einhvern annan gera það. Myndir frá síðustu 5 árum munu vera settar í þessa bók :)

Eftir innan við mánuð mun Þóra Jenný og Sólveig koma í heimsókn :D það verður algjör snilld. Það er alltaf gaman að fá heimsóknir svo ef það eru einhverjir fleiri sem hafa áhuga just let me know.


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 20:15:30 / thorunnanna

Ungverjinn skrifar

Komin tími á smá færslu, þótt fyrr hefði verið ;)

Nú er ég komin út til Ungverjalands aftur en aftur á móti er taskan mín ekki komin. Ekkert smá pirruð, ég lennti á sunnudagskvöld og þá kom í ljós að taskan mín var týnd, ég fæ hana sennilega um hádegi á morgun, miðvikudag. Ungverjar eru sennilega með verstu þjónustulund sem til er og allt í kringum týnda tösku er bara vesen, eftir að hafa verið hér í fjögur og hálft ár og umborið slæma þjónustulund á flestum stöðum í þessu landi þá er bara mælirinn orðinn fullur eftir allan þennan tíma, ég hef enga þolinmæði fyrir þeim lengur og þar af leiðandi pirra ég mig á öllu sem þeir gera eða gera ekki. En nóg um það :S

Ég átti alveg ágætan tíma heima, reyndar kom ég miklu minna í verk en ég ætlaði en það er alltaf þannig. Ég fór á tónleika með Sálinni og Gospel, þvílík snilld. Síðan fór ég á Skagaströnd í heimsókn eina helgi og cjillaði með Helenu, Skúla og börnunum "mínum", það er alltaf jafn gaman þar. Síðan komu Helena og co líka í bæinn til okkar, voru með okkur yfir áramótin og komu síðan aftur næst síðustu helgina áður en ég fór út, bara endalaust stuð út í gegn. Frikki kom líka í bæinn yfir jól og áramót  og hann kom líka um síðustu helgi, hann ætlar að koma að heimsækja mig einhverntíman á önninni og ég er nú þegar orðin spennt.

 Mesti tíminn fór þó í starfsnám á fæðingar og kvennadeildinni á landspítalanum, var þar í þrjár heilar vikur og á þeim tíma lærði ég alveg helling. Það eru alveg stórkostlegir læknar á þessarri deild, alltaf tilbúnir að svara spurningum og leyfa manni líka að taka þátt í ýmsum hlutum, t.d. var ég fyrsti aðstoðarmaður sérfræðings í að minnsta kosti 10 aðgerðum, rosalega var það gaman. Sá líka eðlilegar fæðingar og 3 keisaraskurði, maður verður ekkert smá emotional þegar maður fylgist með svona. Eftir hvern einasta dag þarna var ég alveg uppgefin af þreytu, ég hafði verið að meðtaka upplýsingar allan daginn.

En það sem ég sé mest eftir að hafa ekki gert á þessum tíma er að hafa ekki meira samband við vini mína, SORRY :cry:. Ég hef aldrei áður verið svona léleg í að hafa samband við fólk, ég var bara extremly löt. 

                                                    Luv u all :D :D :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 00:39:37 / thorunnanna

ég er að koma heim

Ég er að koma heim eftir  15 tíma :) Leigubíll mun sækja mig kl 4 í nótt og keyra með mig þessa 270 km sem eru til Búdapest, það er leiðinlegasti partur ferðarinnar. Síðan fer vélin mín í loftið kl 8:20 og þá mun ferð minni vera haldið til London þar sem ég mun stoppa í einhvern smá tíma, loks kl 16 á ég að vera komin heim  :D

Prófin gengu öll alveg ótrúlega vel, bara vonum framar. Síðustu 3-4 vikur hef ég lítið gert annað en að lesa enda er ég orðin frekar þreytt. Ég kláraði síðasta prófið í gær, augnlækningar, og fór síðan út að borða um kvöldið til að fagna. Eftir matinn ætluðum ég og ein norsk stelpa á djammið en kl 24:00 var ég bara búin á því, ég gat ekki meira.

Í morgun kl 8 fór ég í algjört dekur: byrjaði með andlitshreinsun og andlitsnuddi í tvær klst, síðan fór ég í bak nudd í hálftíma og allt þetta endaði með hárþvætti og blæstri. Pælið í því, ég nennti ekki að þvo og blása mitt eigið hár, ég borgaði einhverri stelpu fyrir að gera það fyrir mig, er þetta ekki hámark letinnar :!:  En fyrir allt þetta borgaði ég ekki nema 3000 kr íslenskar, algjörlega þess virði.

Ég og Frikki ætlum að skella okkur  á tónleika með Sálinni og Gospel kórnum þann 29. des. Frikki er meira að segja búinn  að kaupa miða. Takk fyrir að láta mig vita af þessum tónleikum Siggi Bjarni :)

Ég ætla ekki að skrifa meira núna, ég þarf að halda áfram að pakka niður ;)

Sé ykkur á Íslandi :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 05:37:53 / thorunnanna

bara svona örstutt

Núna er klukkan orðin 06:33 hjá mér og ég hef ekki sofið nema í 15 mínútur í alla nótt. Þannig er mál með vexti að ég og Ingvar erum að fara í próf í húðsjúkdómalækningum kl 8 og við höfum verið að reyna að bjarga því sem bjargað verður fyrir þetta próf. Hvorugt okkar er mjög vel undirbúið fyrir prófið svo við ákváðum að sitja heima hjá mér í alla nótt og læra, Ingvar er enn að en ég er komin með nóg, það verður engu bjargað úr þessu.Nú verðum við bara að vona það besta.

ÉG KEM HEIM EFTIR AKKURAT VIKU :D :D :D :D :D :D Ég er mjög spennt


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 21:57:02 / thorunnanna

Lífið er bara yndislegt (ég veit ég er væmin, sorry)

Tvö próf búin og 3 eftir, síðan kem ég heim :D  Ég kláraði tvö stærstu prófin á mánudag og þriðjudag, taugalækningar og meltingarlækningar, ég fékk 5 í báðum (5 er hæðsta einkunninn sem þú getur fengið hér, skalinn er 1-5), mér hefur aldrei gengið svona vel áður. Ég fagnaði vel eftir prófið í gær með norskri vinkonu minni: fórum út að borða, fengum okkur koktel, fórum í bíó og cjillaðum bara endalaust mikið enda áttum við það báðar skilið eftir framistöðuna fyrr um daginn. Hérna úti eru næstum því öll próf munnleg og þið sem þekkið mig vitið að ég get talað ;) en í prófunum hérna virðist ég alltaf stressast svo mikið upp að ég á erfitt með að miðla þekkingu minni en í gær í meltingarlæknisfræði prófinu þá settist ég bara í sófann inni á skrifstofu prófessorsins ásamt norskri vinkonu minni, hún var líka að taka sama próf, og var allveg svakalega afslöppuð og kom þar af leiðindi öllu til skila sem þurfti. Eins og norska vinkona mín sagði "this was completely new Tóta, I have never seen u like this", hún hefur tekið ansi mörg próf með mér og séð mig þegar ég fríka út. Ég er ekki ennþá komin niður á jörðina.

Ég ætla að fara að kaupa flugmiða á eftir :) ég kem heim annað hvort 16. eða 17. des og fer síðan ekki út aftur fyrr en 4. febrúar. Ég mun vera í þriggja vikna starfsnámi á fæðingar- og kvennadeildinni í Reykjavík og restina af tímanum mun ég bara njóta þess að vera til. Ætla reyndar að nota eitthvað af tímanum til að vinna í einhverri ritgerð sem ég er gera. Kannski fer ég á Norðfjörð yfir eina helgi eða svo til að heimsækja "litla" bróður minn og síðan langar mig líka að fara heimsækja vini mína á Skagaströnd, svo framalega sem Helena vilji fá mig í heimsókn :lol:

Kossar og knús frá Ungó


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 23:52:13 / thorunnanna

Summer of '69, Hurricane, All for one and one for all, have you ever loved a woman--- Bryan Adams :-)

Bryan Adams er STÓRKOSTLEGUR. Ég var að koma af tónleikum með honum, maðurinn er hreinn snillingur, hvílíkur performer og entertainer. Það er næstum ómögulegt að trúa því að þessi maður sé 47 ára gamall. Ég stóð í miðri þvögunni í kvöld, á ca 5 cm háum hælum, gargandi og hoppandi eins og lítil 13 ára gelgja., ég er líka gjörsamlega búin á því í löppunum. Fyrir tónleikana fórum við nokkur heim til Eggerts, hann var búinn að elda rosalega góðann kjúkling með Indversku ívafi og hann bauð líka upp á bjór og vín, maturinn bragðaðist æðislega---- Takk fyrir mig Eggert minn :) Eftir tónleikana fórum við síðan nokkur á bar niðri í bæ og fengum okkur koktela.

En ég ætla ekki að skrifa meira núna. Þarf að fara hvíla mig svo ég geti nú lært almennilega á morgun, er að fara í tvö stór próf í næstu viku :S


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 17:23:10 / thorunnanna

Yndislegur dagur so far

Í dag fékk ég frábærar fréttir, þannig er mál með vexti að í áfanga sem heitir taugalæknisfræði var keppni í í gær, það voru 80 krossaspurningar á ca 1,5 tímum. 10-15% nemendanna sem tóku þátt fá síðan undanþágu frá skriflega lokaprófinu, þeir 10-15% sem hafa hæðstu einkunn, en allir þurfa að taka verklegt próf. Ég var ein af þessum 10-15% sem fékk undanþáguna:D  Lífið er yndislegt núna, þetta þýðir það að ég kem eitthvað fyrr heim en var planað. Af þessum 12 sem fengu undanþágu þá voru 3 af þeim Íslendingar (við erum einungis 6 samtals á árinu mínu), og þar að auki þá var það Íslendingur sem vann keppnina.

Í kvöld er Bjartur að halda upp á afmælið sitt, hann átti afmæli í gær og auk þess vann hann keppnina, hann hefur nóg að fagna. Þannig að maður ætlar nú eitthvert að dansa og skemmta sér, það er sennilega í síðasta skiptið sem maður gerir það á öninni.

Um síðustu helgi fór ég í snildar matarboð hjá Ungverskum vinum mínum. Þar smakkaði ég í fyrsta skiptið kanínukjöt, rosalega er það gott. Það var boðið upp á kanínu maríneraða í rauðvíni og aðra kanínu maríneraða í hvítvíni. Síðan var drukkið ungverskt vín með. Þetta var yndi í alla staði.

Annað kvöld mun ég svo halda smá matarboð fyrir Indverska vini mína, ég ætla að standa við pottana í ca 5 klukkutíma og elda ekta Eþópískan mat. Það er einn af mínum upphalds réttum, en ég nenni nú ekki oft að elda þetta því það tekur svo langan tíma.

Ég kveð í bili,  kossar og knús frá Ungverjalandi :)

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 21:34:26 / thorunnanna

einhvern tímann er allt fyrst

Þessi dagur byrjaði nú ekki vel, ég átti að mæta í tíma kl 7:45 og ég vaknaði ekki fyrr en 7:20. ÉG SVAF YFIR MIG, það gerist eiginlega aldrei fyrir mig. Ég var samt það snögg að hafa mig til og hringja á leigubíl (fyrsta skiptið sem ég þarf að taka taxa í skólann út af því að ég er sein) að ég náði í tíma en gleymdi öllum bókum og læknasloppnum mínum heima. Ótrúlega er óþægilegt að vera svona sein, ég skil ekki fólk sem leggur það í vana sinn að koma alltaf of seint alls staðar.

Ég notaði síðan þennan dag bara í að slaka á, safna kröftum fyrir næstu læritörn, sem þarf að hefjast á morgun þar sem ég hef tvö próf í næstu viku. Ég leigði mér tvær dvd myndir og horfði á þær og saumaði út yfir þeim. Síðan skellti ég mér í bíó í kvöld með tveimur vinum mínum, við sáum myndina Borat (Ali G). Rosalega er sú mynd fyndin, reyndar algjört rugl og enginn söguþráður en ég hló næstum alla myndina.

Ég gerði ekkert spennandi um síðustu helgi, var bara félagsskítur, það var  partý heima hjá Daða vini mínum en ég nennti enganveginn. Lærði allan Laugardaginn og var síðan að vinna allan sunnudaginn. Ég er nefnilega búin að vera í rannsóknarvinnu í Líffærafræðideildinni síðan ég byrjaði á 3. ári bara svona að gamni mínu með skóla. Mig langaði nefnilega að kynnast rannsóknahliðinni í læknisfræðinni líka, verða smá víðsýnni :) Mér finnst það líka mjög skemmtilegt en ég veit að mig langar að vera læknir á spítala eða heilsugæslustöð ekki vera inn á lab-i allan daginn. Ég fer alltaf annað slagið um helgar og vinn í þessum rannsóknum, síðasta sunnudag var ég frá kl 9 til 18, mjög langur dagur. En allir pappirar um svona rannsóknavinnu og líka kennslu (ég var aðstoðarkennari í fyrra í verklegri taugalíffærafræði og mun verða það aftur á næstu önn) mun vera litið mjög jákvætt á þegar ég fer að reyna að komast inn í sérnám einhversstaðar, það munar um allt :lol:

Ég býð góða nótt

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 23:48:00 / thorunnanna

ég ætla ekki að vera hjartaskurðlæknir

Halló,

Þetta var rosalegur dagur í dag, ég og Ingvar fórum að horfa á hjartaaðgerð. Við mættum kl 8 í morgun og fórum ekki út af spítalanum fyrr en kl 16, á öllum þessum tíma borðuðum við ekkert enda vorum við að deyja úr hungri þegar við komum út. Við fengum að vera inn í aðgerðarherberginu þ.a.l. sáum við allt sem var að gerast. Það var verið að framkvæma þrefalda hjáveitu aðgerð á hjartanu, 3 kransæðar voru stíflaðar. Við horfðum á hjartað slá í brjóstkassanum eftir að brjóstkassinn var opnaður, frekar magnað, síðan var sláttur hjartans stoppaður með ísköldum vökva auk annarra efna. Þannig að á meðan hjartað var stopp þá framkvæmdu þeir hjáveituna. Þetta var ótrúlegt að fylgjast með þessu og við vorum líka svo heppin að það var frábær svæfingalæknir í aðgerðinni sem nennti að útskýra allt fyrir okkur og kenna okkur alveg helling. Þótt þetta hafi verið mjög skemmtilegt og áhugavert þá langar mig alls ekki að vera hjartaskurðlæknir, að standa og mega ekkert fara frá sjúklingnum allan tímann sem á aðgerð stendur er klikkun. Læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina í dag var að frá kl 10, þegar aðgerð hófst, og var ennþá að kl 16 þegar við fórum, hann fór aldrei frá sjúklingnum. En þetta var vel þess virði að sjá einu sinni.

Ég var svo uppgefin þegar allt þetta var búið að ég treysti mér engan vegin til að læra. Ég fór bara heim að horfa á dvd og sauma út, algjör afslöppun. En þetta gerir það að verkum að ég þarf að vakna snemma á morgun og vera dugleg að læra geðlækningar, vegna prófsins sem ég tek í því komandi þriðjudag.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 19:11:42 / thorunnanna

szia minden ember (komið sæl öll sömul)

Það er kominn tími á nýja færslu :)

Það er reyndar mjög lítið búið að vera að gerast síðustu daga. Í dag var frí í skólanum þar sem það er dagur hinna látnu í Ungverjalandi, það er nefnilega almennur frídagur í dag þar sem hinna látnu ættingja og vina er minnst og allir Ungverjar streyma í kirkjugarðanna. Þetta er alltaf einu sinni á ári, þá er enginn skóli, allar búðir lokaðar o.fl. Ég nýtti bara daginn og fór upp í skóla og lærði geðlækningar enda er ég að fara í annarpróf í því á þriðjudaginn, það verður annað prófið mitt á önninni. Hitt var próf í siðfræði, og þar sem ég er algjörlega siðlaus þá hef ég pottþétt fallið ;) Reyndar er einkunninn ekki kominn en þetta var ekki erfitt próf, ég veit að ég náði.

Núna er allt að hækka svo mikið hérna í Ungverjalandi, ekki gott fyrir fátæka námsmenn. Sem dæmi þá kostaði 100 forintur (ungverska myntin) í sporvagninn þegar ég var á fyrsta ári, síðan hækkaði það alltaf eitthvað smávegis og var komið upp í 180 forintur, sem er slatta hækkun. En núna 1. nóv þá ákváðu þeir að hækka úr 180 í 215 forintur, þetta er mikil hækkun á stuttum tíma. Þetta er bara eitt dæmi, það er allt að hækka hérna en aftur launinn hjá hinum almenna Ungverja eru ekki að hækka í samræmi við þetta.

Ég er búin að kaupa mér miða á tónleika með Bryan Adams núna 23. nóv. Hann verður að spila í bænum mínum, ég er ekkert smávegis spennt. Kannski frekar sorglegt að viðurkenna það en hann hefur alltaf verið minn uppáhalds söngvari. Ég gleymi því aldrei þegar hann kom til Íslands '94 og var að spila í Reykjavík, ég var ekkert smáveigis sár þegar foreldrar mínir bönnuðu mér að fara til Reykjav á tónleikanna. Ég reyndar skil þau núna, það leyfir enginn foreldri 15 ára barninu sínu að fara einu til R.vík á tónleika.

Það býr svo yndislegt gamallt fólk í blokkinni minni hérna úti, þau fygjast alltaf svo vel með mér og ég reyni eins og ég get að spjalla við þau á minni bjöguðu Ungversku. Í kvöld kom nágranni minn og bankaði upp á hjá mér, hann kom til að gefa mér tvær kökusneiðar. Algjört yndi

Kossar og knús frá Ungverjalandi


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 23:19:20 / thorunnanna

fleiri fréttir

Komið sæl,

Það er ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Dagurinn í gær toppaði allt; ég og Eggert vinur minn fórum aukalega á nýburadeildina og fengum að fylgja kennaranum okkar eftir (algjörlega utan stundaskrá). Þarna fengum við að hlusta lungu og hjarta hjá 500 gr nýbura (svona til samanburðar þá er eitt ljóma smjörliki 500 gr) sem fæddist ca  12 vikum fyrir tímam, það var svolítið magnað. Síðan fengum við að sjá keisaraskurð hjá konu sem var ekki komin nema 31 viku (eðlileg meðganga er 38-40 vikur) og þar sáum við líka lækninn barkaþræða barnið. Eftir alla þessa upplifun þá fór ég í tíma í húðsjúkdómalækningum, þar vorum við að skoða sjúklinga sem voru mjög illa farnir eftri bruna, það var frekar erfitt að sjá það.:S

Um eftirmiðdaginn hjá leigðum við nokkur saman bíl og keyrðum til bæjar sem er ca 2 tveimur tímum fyrir utan bæinn sem ég bý í. Þar fórum við til að horfa á landsleik Íslands og Ungverjalands í handbolta, þótt við skít töpuðum þá var þessi ferð frábær. Eftir að leikurinn var búinn þá keyrðum við til annars bæjar, Eger- þekkt vínræktarhérað í Ungverjalandi, og fengum okkur að borða þar áður en við lögðum af stað aftur til Debrecen.

Síðan í kvöld var þetta svokallað gulyaball. Ég var klædd í sarí, Indverskan þjóðbúning, það eru 6m af efni vafið utan um mann á ákveðinn hátt. Þetta var frekar sorglegt ball, aldrei verið svona fátt svo ég muni eftir en það var samt gaman að sjá samnemendur sína svona uppáklædda. Það sem var samt best við kvöldið var að fara saman út að borða með nokkrum Íslendingum auk tveggja indverska vina okkar. :D

Ég býð góða nótt


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 21:15:24 / thorunnanna

smá blogg frá Ungverjalandi

Komið sæl,

Ég ákvað að byrja  að blogga svona til tilbreytingar, þannig að þeir sem hafa áhuga geta frædst um það sem ég er að gera í útlandinu.                                                  Núna var að enda hjá mér svaka matarboð, ég bauð ungverskum vinum mínum í hálfgert íslenskt þorrablót (ég veit að þorrinn er ekki  núna). Matseðillinn saman stóð af: rúgbrauð, flatbrauð, hákarl, íslenskt brennivín, harðfisk, hangikjöt, maríneruð síld, sviðasultu, blóðmör, lifrapylsu, graflax og graflaxsósu. Síðan bauð ég upp á heimagerða heita eplaköku með ís og rjóma í eftirrétt. Það var síðan drukkið ungverskt rauðvín með matnum. Þetta var ótrúlega gaman og sérstaklega að fylgjast með viðbrögðum vina minn þegar þau smökkuðu hákarlinn og íslenska brennivínið:)

Það er margt að gerast hjá mér um næstu helgi: á föstudagskvöldinu er landsleikur í handbolta milli Íslands og Ungverjalands í litlum bæ svona tveimum tímum frá mér, auðvitað fer maður að hvetja sína menn. Á laugardagskvöldinu er svo goyla ball (storka ballið- bein þýðing), þetta er svona hálfgerð árshátíð þar sem  markmiðið er að bjóða nýnema velkomna. Menningin í nafninu á ballinu er sú að storkarnir koma með börnin í skólann til okkar :o

Ég ætla ekki að hafa fyrsta bloggið mitt lengra.                                                        kveð í bili, kossar og knús frá Ungverjalandi


» 2 hafa sagt sína skoðun